Hvernig tekur maður þátt í leiknum?
Eftir hverja umferð birtir fotbolti.net Lið vikunnar. Ef þú átt 8 af þessum 11 leikmönnum getur þú sent þá til Draumaliðiðsins og þannig eignast möguleika á að vinna ýmsa vinninga. Lið vikunnar er birt hér á þessari síðu.
Þessir vinningar eru veittir eftir hverja umferð.
1.verðlaun
Knattspyrnuskóli Manchester United
2.verðlaun
Fótboltatreyja frá liði úr Pepsi-deildinni í þinni stærð
3.verðlaun
Pepsi bolti
Í haust þegar deildinni lýkur er dregið úr öllum innsendum liðum vikunnar og heppinn þátttakandi vinnur ferð á meistaradeildarleik ásamt foreldrum. Því oftar sem þú tekur þátt í liði vikunnar því meiri möguleika áttu á að vinna stóra vinninginn.
Sendu Draumaliðið vikunnar til:
Áreyjar ehf.
Bíldshöfða 14
110 Reykjavík
Krakkar - munið að láta nafn, símanúmer og heimilisfang fylgja með.
Einnig getur þú afhent okkur það í Senternum, Ármúla 18 í lokuðu umslagi með nafni , símanúmeri og heimilisfangi.